sunnudagur, desember 15, 2002

en ætli það sé ekki í lagi ;) júhh það held ég nú.. mar er ekki maður með mönnum í dag nema hafa viðurnefnið "bloggari" svo ég er kúguð og fékk mér blogg.. eða nei kannski ekki kannski er þetta allt saman bara einhver tjáning og upplýsinga miðill fyrir þá sem vilja :) hír jú go then! ...ég vaknaði með hausverk í morgun.. jafnast ekkert á við það.. og klæddi mig svo upp sem mús og fór að spila badminton.. félagið var með jólamót og húllum hæ, piparkökur og GERbollur :Þ ..ég átti að baka í gærkvöldi og jújú.. ég bakaði en viti menn the baking master gleymdi að setja ger í tilbúnu deigblönduna sem mamma lét mig fá og útkoman varð grjótbollur. Mamma varð ekki hamingjusöm þegar hún fattaði það. En já semsagt er ég lítið annað búin að afreka í dag en að gera mitt allra besta við að líkjast mús í badminton.. tapaði öllum leikjunum og er ánægð með frammistöðuna, við máni vorum besta teamið en fólk bara fattaði það ekki og þessvegna fengum við engin verðlaun! Mér er kalt á tánum núna því ég er ennþá á tánum síðan ég fór í sturtu kl.4 og nenni ekki í sokka, hvað þá að loka glugganum!