laugardagur, mars 15, 2003

ég held ég fari að komast inná top 10 listan yfir lötustu bloggara í gúndagsins flaumi og niðandi straumi! Ég var jafnframt og meðfram að hugsa um að hætta þessu bara og segja skilið við dreitil annað hvort að eilífu eða tímabundið.. en samband okkar verður að fá að liggja í lausu lofti næstu daga við þurfum tíma frá hvort öðru.. tökum hlé.. maður sér hvað maður hafði þegar maður hefur misst.. þetta lætur mig kannski fara að sakna dreitils og ég fatta að ég get ekki lifað án hans hver veit? ekki ég.. og ekki gúndi.. nei nei ég segi sona ég er bara að undirstrika að mér er alveg sama þó að ég bloggi ekki í viku og viku en svo allt í einu blossar neisti milli okkar og ég blogga eins og villt vera.. þetta ræðst bara.. lifum í núinu!!

ég er ekki sátt við sundlaugina að þau loki kl. hálf sjö á laugardögum! og á þelamörk líka bara lokað snemma á laugardögum en opið öll önnur kvöld alveg til 11!! hvaða ha?! einmitt þegar mér dettur í hug á laugardagskvöldi að fara í sund.. það er nú ekki eins og mér detti í hug á hverju kvöldi að fara í sund neinei það veit stubba..



ekki öskra á gamalt fólk..