komin heim komin heim komin heim og mer finnst erfitt að venja mig á íslenska lyklaborðið með ð og þ og í ó á é og öllu íslensku en það kemur von bráðar! það var bara svo gott að koma heim.. síðustu dagana var eg bara a þeysispretti allan daginn og rétt náði að draga andan þrisvar a dag eða svo.. pökkunin varð að veruleika en ég gleymdi að vísu nokkrum hlutum.. þar á meðal gúmmístígvélunum mínum en ég sakna þeirra ekki ennþá sem betur fer því það er alltaf sól á Akureyri :) Næst síðustu nóttina mína gisti ég hjá Lailu og Claus i Odense og svo hentu þau mér uppí lest morguninn eftir með 40 kílóa farangur.. honum skutlaði eg beint a kastrup því nennan í mér hataði hann og vildi ekki sjá hann fyrr en heim var komið.. í lestinni frá kastrup sat ég óþægilega nálægt óforskömmuðum Íslendingahópi sem var á góðri leið að detta hrottalega í það.. með þvílíkan kjaft haldandi að enginn skildi neitt i neinu sem þeir sögðu en þeir hefðu mátt hugsa það til enda.. hmmmm mig langaði ekkert að vita af afdrifum þeirra og einhverra tyrkneskra gálna kúkandi í bolla saman!!! ja fuss.. ég hafði ekki einu sinni geð í mér til að snúa hausnum að þeim og segja þeim að binda fyrir andlitsopið á sér.. en jæja.. þennan sama fimmtudag herjaði ég á strikið.. og gekk ágætlega að eyða síðustu peningunum mínum þar.. um kvöldið fann ég svo mjög krúttlegan veitingastað sem heitir navona og við Birkir snæddum þar kvöldverð af bestu list eftir slagsmál við síma og mobilforbindelse... a leiðinni heim tókum við skyndiákvörðun um að skella okkur í tívolí.. tveim tímum fyrir lokun.. og bölvuð beyglan i afgreiðslunni vildi ekki selja okkur túrpass svo þegar okkur loksins tókst að telja hana inná það þá höfðum við 25 mínútur til að hlaupa í sem flest tæki og við stóðum okkur afbragðsvel og náðum 5 ferðum i 4 tæki :) in her face sko! þegar heim var komið þurfti að þjappa ofan i handfarangurstöskurnar og Birkir greyið sat uppi með uppskriftarbækur og annað ónauðsynlegt.. vona að hann geti notað það einhvern daginn :) Þegar komið var að heimferð og check in neyddist ég til að borga yfirvigt fyrir 12 kíló en það kom mér ekki mjög á óvart svo eg fór ekki að skæla yfir því ;) ..mér að kenna! aaaaah nú nenni ég ekki að skrifa meir klára seinna... segi pass i bili


<< Home