Óskar Helgi blæs í belgi.
Ég svaf alltof lengi í dag, það er morgunljóst. Er enn óklædd og segi: sunnudagur.. upphátt einu sinni á klukkutíma. Búin að horfa á mannskemmandi sjónvarpsefni í MTV í dag og borða blómkál með kotasælu og hvítlaukssalti.. mm mm! Snjórinn kitlaði mig í gær og ég át hann. Varð barn á ný og fagnaði þeirri tilbreytingu frá fullorðinsleik háskólanemans. Henti mér í snjóinn og þóttist synda, gerði afsteypu af andlitinu á mér og kastaði snjóboltum sem galin. Gekk fram á tvo snjógúbba og heilsaði þeim báðum. Það rann upp fyrir mér að ég var víst búin að sakna þess að hafa ekki snjó í kringum mig. Svo ég laug þarna um daginn þegar ég sagðist fegin að hafa hann ekki. Ég er búin að leiðrétta lygina og þvo á mér tunguna.
Helgin er búin að vera góð, aðeins of mikið nammi en ég sprikla það af mér í vikunni. Með Jón Pál á stílabókinni (takk Una ;)) er ómögulegt annað en að verða fyrir innblæstri og langa til að verða vöðvabúnt. Það sem ég elska mest við þessa stílabók er að á þessum tíma var ekki til photoshop og það sést greinilega að Jón er með bólu (það er mynd af stílabókinni(Jóni) í síðustu færslu). Jón ó jón..
Við Karin héldum unaðslegt matarboð á föstudagskvöldið. Buðum 4 stelpum í saffransúpu, nýbakað brauð og dýrindiseftirrétt ala Íslendingurinn.. Buena Vista á fóninum og hlátur í loftinu. Mmm mm góðar stundir. Eftir mat og mal skelltum við okkur á Kåren og ég tók heilan helv.. helling af myndum. Þær setti ég inn á myndasíðuna mína undir Svíþjóð - 2007 - janúar.. eða hér

Karin sæti kokkur skammtar gestunum..

Rebecka og Tove njóta víns og matar..

Í röð.. Hanna, Karin og Amela bíða í ofvæni eftir að komast inn á Kåren.

Diskó freakin awesome dancing!
Gott kvöld. Fyrirlestrar framundan í vikunni. Hálfur skóladagur hálfur lestrardagur. Fínt fyrirkomulag, bókasafnið verður nýtt í næpur. Svo fæ ég pening vei! Spurning um að skipta pappakössunum út fyrir einhver húsgögn af blocket.se elsk'essa síðu.. elsk'ana! Ætla'ð giftast'enni. Mm pottþétt.
P.s. þessi færsla var númer 400. Vóah!

Diskó freakin awesome dancing!
Gott kvöld. Fyrirlestrar framundan í vikunni. Hálfur skóladagur hálfur lestrardagur. Fínt fyrirkomulag, bókasafnið verður nýtt í næpur. Svo fæ ég pening vei! Spurning um að skipta pappakössunum út fyrir einhver húsgögn af blocket.se elsk'essa síðu.. elsk'ana! Ætla'ð giftast'enni. Mm pottþétt.
P.s. þessi færsla var númer 400. Vóah!


<< Home