fimmtudagur, desember 26, 2002

Well hello! ahh ég er búin að sofa svo lengi fram eftir núna síðustu tvo morgna það er bara uuuunaður.. þetta er annars búinn að vera hinn ágætasti letidagur... mamma og pabbi eiga 18 ára brúðkaupsammæli í dag og ég er mjög ánægð með það :) elfa er alveg að fara yfir um í svefni hún tekur út steiktu hliðina á sér þegar hún sefur þessa dagana og dreymir eintóma þvælu fram og til baka greyið stelpan.. annars eru draumar ágætir.. oft.. en stundum breytast þeir í martraðir og það er ekkert gaman.. einu sinni fékk ég martröð um að mamma bakaði okkur systkinin alltaf í bakaraofninum einu sinni í mánuði, það var alveg skelfilegt og mamma mín mundi aldrei gera slíkt og annað eins... ein mjög minnistæð martröð var þegar pabbi át uppáhalds pony hestinn minn.. skil ekki hvað er að mér foreldrar mínir eru besta fólk :o| þetta eru tvær af fjórum martröðunum sem ég hef fengið, en þriðja snérist um það að turtles voru að elta mig og þeir eiga nú að vera góðir ef ég man rétt en mér tókst að snúa því líka upp í að þeir væru vondir... sú fjórða var sú fyrsta og þá var ég 3 ára og mamma var nýbúin að lesa fyrir mig palli var einn í heiminum og mig dreymdi að ég væri palli það hefur örugglega verið sú hræðilegasta.. mamma sagði mér að ég hafi vaknað alveg ísköld og rennandi sveitt :s ja ljótt er það.. en sem betur fer geta nú draumar verið góðir líka :) en þá er einn galli að maður vill ekki vakna.. það hafa örugglega allir lent í því að vera vakin(n) og verða alveg pirraður við þann sem vakti mann því maður vildi sofa áfram og dreyma meira.. aumingja pabbi kallinn hefur lent í þessu en hann þurfti að sjálfsögðu að vekja mig með "yndisfögrum" söng sínum og það vakti ekki kátínu í "The Hole"
eee well tchuuuss!!