aaaahhh blogga aftur eftir tvo dag.. þetta hlýtur að teljast afrek og þá hlýtur þetta blogg jafnvel að teljast hetjusaga..jeij! nei! það er engin hetjudáð að blogga hvað er að mér.. ég er að fara á konukvöld á eftir =) jeij! kannski verð ég hetja.. nei.. eggert er ekki hetja.. egg eru ekki hetjur heldur og ekki er birgitta haukdal hetja! eða kannski.. henni tókst að síja þessu smellna júróvísjón soundtracki inn í minn úldna heila úha.. mér er ekki vel við þá staðreynd.. man ekki hvar ég heyrði þetta lag í dag einu sinni.. ég er södd og sæl hins vegar ég var að snæða grjónagraut sem er uppáhalds maturinn minn :þ gott að lifa með því.. sundstaðreyndir lífs míns eru ekki að gera sig stæltar þessa dagana öllu heldur marflatar.. þegar ég er farin að hlakka til þess að fara í skólasund (það hefur ekki gerst frá því að ég man eftir mér) þá er sundkallinn hann sigurpáll veikur.. búnað næla sér í flensuna greyið.. og þegar ég vil fara í sund á þelamörk á laugardagskvöldi (sem er nú ekki í frásögur færandi) þá er búið að loka.. já ég lifi einföldi lífi og kvarta undan litlum hlutum.. jafnvel tvisvar sama hlutnum.. einfeldni er af hinu góða.. allavega annað slagið.. ég ætla í sund!


<< Home