föstudagur, maí 09, 2003

hey hey! ég er að slamma við botnleðju með skara kúl! Magnaður andsk. neinei það er samt fjör og hér er gleði.. fór í þýskupróf áðan hryllilegur andsk. neinei eða jú! Heyrði í elfu áðan og hún var að bögglast í búðum með helgu í borg óttans.. heklusnúður kom líka í heimsókn áðan og það gladdi mig uppfyrir eyru :D Hekla er yndi synd og skömm að hitta hana ekki oftar.. annars keyrði ég í gegnum bæinn áðan og þvílík kaos ja sko til allir í bænum kosninga sprell og grill á ráðhústorgi og allt í einu kom argandi haglél sem vakti undrun áhorfenda heldur betur.. dularfullur texti í þessu botnleðju lagi við skari ýkt kúl erum ekki sammála.. svo vill hann hlusta á birgittu haukdal en ég mótmæli hástöfum hann er samt ekkert að ná því að hún sé ekki inn.. kommon hann er á svo miklu gelgjuskeiði að að að ég á ekki orð aqua - írafár - í svörtum fötum !!!!!!!! haha nei hann er rokkari og fær niddara ef ég minnist á eitthvað af þessum og fleiri eðal músík böndum ;)