fimmtudagur, maí 08, 2003

óþægilegt að þurfa að hætta að skrifa svona skyndilega eins og í gær.. ég var ekki sátt við liðið sem herjaði inní tölvustofuna.. en stundum verður maður bara að bíta í hið súra epli.. sem minnir mig á skyrið sem ég borðaði í löngu það var súrt =( og orsakaði líka heftarlegan hlaupasting í hlaupaprófinu í dag þar sem ég hljóp eins og hamstur í hjóli og svitnaði á tánum.. annars er ekkert markvert á döfinni.. er að velta fyrir mér hvort ég eigi eitthvað að vera að fá mér "sjálfstæðis pítsu" á morgun.. aldrei að vita hverju ég tek uppá en annars ætla ég að vinna alla helgina.. strita við að selja blóm þeim sem langar í blóm en ætla að gefa þau og mold þeim sem eru að fara að gróðursetja en langar að drullumalla og jafnvel reykelsi þeim sem fá hausverk af reykelsi en eru alltaf með reykelsi og halda að þeir séu með mígreni eða kannski sel ég einhverjum litla rónastyttu! jeij! það kemur mér alltaf á óvart hvað er keypt mikið af litlum styttum og sona tombólu dóti sem ég kýs að kalla :þ en engu að síður ánægjulegt =) ætli ég verði ekki að hrinda sjálfri mér í að skrifa e-ð um H.C.Andersen núna.. fæ ekki nóg af dönskuverkefnum :D