miðvikudagur, apríl 30, 2003

Já sælir nú! norðmenn eru hér í bæ og hasla sér grænan völl eða eitthvað í þá áttina.. jebb.. ég er svo þreytt að ég er með krónískan þreytu/vaxtarverk í fótunum sem vill ekki fara fyrr en bara með norðmönnunum.. held ég allavega.. jahh sko ég fékk allavega 8,5 fyrir sögufyrirlesturinn alveg sátt með það en hins vegar er ég ekki sátt við þetta lyklaborð sem ég er að hamra á núna svo stafirnir komi á réttum tíma á réttum stað! Ég var líka í umsjónarkennara viðtala það gekk skítsæmilega bara eins og við er að búast sagði þorláki þó bara eins og er.. að mig langaði ekkert að læra það sem ég er að læra heldur bara að verða garðyrkjubóndi á Flúðum með gallerí í hlöðunni eða eitthvað... samt langar mig líka að vera með hlöðu af vissum ástæðum :þ ohh nú er ég búin að dæsa svona tuttugu sinnum yfir því sem ég er að skrifa..



annars fór ég líka í mývatnssveit í gær og brokkaði þar um á rútu með 60 öðrum.. mér tókst þó að rífa buxurnar mínar í Dimmuborgum.. en það æxlaðist þannig að við elfa vorum jötnar og tókum Bjarna í kóngastól og þá vildi hann vera mikill maður og halda á okkur bæðum í einu en það varð okkur öllum að falla og hrundum við hvert ofan á annað ofan í gjótu og tröllinn hlógu að okkur =) og við hlógum með þeim.. Ísak hló ekki því hann neyddist til að japla á hvítlauksbrjóstsykri :D ! ..hvort segir maður brjóstsykur eða bara brjósykur eða jafnvel brjóssykur.. svar óskast sem fyrst



ég kveð með brosi :)