þriðjudagur, apríl 01, 2003

Já hæfadderí og faddirallala eða eitthvað í þá áttina.. það eru ágætis dagar í dag.. hvar sem maður kemur í skólanum er manni mætt með bros á vor og góðum mútum! Hvort múturnar virka það er aftur annað mál =) Svo líður mér líka vel með það að hafa geðklofa í kringum mig sem er annað hvort flögrandi um í sætindum sínum eða valhoppandi með slefið í munnvikinu sem flóðhestur í afmæli! já það er rétt hún elfa er afar glöð þessa dagana.. ekkert nema gott um það að segja held ég =) Annars er 1 dagur apríl mánaðar í dag og hafa eflaust margir hlaupið af sér skóna dettandi um dyragættir og beint oní aprílgöbb gúndagsins.. ástkær faðir minn tók nú uppá því að hafa svolítið gaman að þessum degi og plata alla í vma og honum tókst meira að segja að plata hvíta mávinn (gest einar). Gestur las gabbið á vefnum hjá verkmenntaskólanum og útvarpaði það í auðtrú sinni :)) aldeilis gaman að því.. annars hef ég heimildarverkefni til að vinna.. og því sprengi ég belginn!