heyjallíúbba! Sunnudagur að kveldi komin og mánudagur skríður í bæinn eftir ánægjulega fjarveru.. enginn saknaði hans held ég.. ekki ég í það minnsta... aumingja elf, þetta er búið að vera algjör prumpíkrukkudagur hjá henni.. en hún getur allavega huggað sig við það að við erum búnar að sauma frá okkur allt líf í dag.. eins og það sé eitthvað til að hugga sig við.. að vera búin að sauma frá sér lífið.. ég fattaði hvað þetta var asnalega orðað hjá mér.. en já meiningin var að við erum búnar að vera ógeðduglegar =) eins gott að þessir geim hólkar passi á prímadonnurnar :) ég vona að allir hafi horft á heimildarmyndina um tælendingana áðan og hlegið frá sér allt vit eins og ég.. þessir kallar voru þvílíkir bakkabræður að ég átti ekki til orð.. þeir voru alls ekki ófríðir eða leiðinlegir bara óhemju miklir sveitalúðar og geggjað fyndnir ég get svarið fyrir það að ég þurfti að þurka tár milli hláturrokanna.. ég hef aldrei séð jafn skemmtilega heimildarmynd :)) og en eitt ánægjulegt að baunirnar okkar elf eru brosandi jákvæðar og hver veit nema við séum bara að fara að selja ís við ströndina :D ..gerist það betra dejlige Danmark! :)


<< Home