miðvikudagur, apríl 02, 2003

Ég heyri svo vel ég heyri fuglana ropa, ég heyri svo vel ég heyri táneglurnar mínar vaxa, já ég heyri svo vel ég heyr'í fiðrildunum í mallanum, heyri svo vel ég heyr allt!! og allt er þetta útaf því að guð gaf mér eyra svo nú má ég heeyyyra, guð er góður. Ég er svöng.. kaus í dag kaus vel að mínu mati, annars kjósa allir vel að sínu mati, hlustaði á fróðlegan félagsfræði fyrirlestur, annars finnst mér flestir fél-fyrirlestar fróðlegir.. bara misgóðir.. svo dró ég brósa (ég skal passa brósa.. getum við verið góóóð eins og allt sé eðlilegt!!!) í ljós það tókst eftir miklar rökræður og þráttindi en að lokum sigraði ég þegar ég sagði að hann gæti tekið geisladisk með.. hann hélt að þetta væri bara þannig að það væri "hommapopp" eins og hann kallar hnakkatónlistina á fm alltaf alstaðar og það væri ekki hægt að taka það af og allir settu gel í sig og fengju jafnvel sjálfkrafa strípur af því að mæta einu sinni í ljós og yrðu súkkulaði sætir af því einu að panta sér tíma.. en annað kom á daginn =) og honum líkaði þetta alls ekki illa, varð bara rjóður og sætur ;)) ..jafnvel þarf ég ekki að draga hann næst, alveg æst..