vá! ég skil þetta ekki.. ég var að vakna sem sé og er búin að sofa í tvo klukkutíma eða eitthvað.. þetta er alltaf að gerast algjörlega á móti mínum vilja. Það er eins og það leggist einhver ofan á mig og andi þreytu á mig um miðjan daginn og alltaf sofna ég.. í gær svaf ég þrjá tíma eftir hádegi.. mér líður eins og einhverju gamalmenni :( ..annars er ég að fara að snæða.. þó ætla ég að bæta einu enn við.. ég er að ganga af göflunum á öllum dramatísku kosningaauglýsingunum.. mér finnst þetta ekkert skemmtilegt! Það eru allir svo fallegir og góðir og vilja öllum svo vel þessa dagana að mér er farið að finnast þetta grunsamlegt svo ekki sé meira sagt! OSTAPÍTSA!!!


<< Home