ég veit það ósköp vel að ég ætti að vera að læra.. hefði átt að vera byrjuð á því fyrir tveim tímum síðan meira að segja en mér fannst mikilvægara að eyða þessum tíma til kitlpyntingar á bróður mínum.. geri þetta alltof sjaldan! aldrei hefur verið jafn erfitt að vakna og í morgun.. ég furða mig þó ekki á því eftir amstur gærdagsins þar sem margar mismunandi höfuðverkjarástæður létu á sér kræla.. dekk eru ágætt og fá bílinn til að svífa áfram en við komumst að því í gær að hann hættir að svífa þegar eitt þeirra springur.. og þá er gott að vera svolítið verklaginn, bretta upp ermarnar og tjakka upp bílinn.. Ólöf og Helga voru ekki í neinum vandræðum með þetta enda báðar ágætis efni í Gyðu Sól.. og það er sko ekki leiðum að líkjast.. annars heppnaðist ballið með eindæmum vel og ekkert var af vesenisbrókum.. hljómsveitin var ánægð með sínar brækur sem merktar voru MA á óæðri endanum gott samkvæmi og geysilegur gróði.. svaf vel í morgun ahh!


<< Home