laugardagur, júlí 24, 2004

Ég er heima. Það hefur aldrei verið jafn gott að vera heima og jafn óþægilegt að vita að ég þurfi að fara á morgun. Óþægilegt. En ég hlakka til að hitta beg, ótrúlegt hvað ég er búin að sakna hennar þessa 4 daga. Fyrir utan það er ég farin að sakna Fru Venneberg og ódýrra jarðaberja. Danmark er dejlig.

Fimmtudagurinn var fullur af friði og hann var fallegur, amma mín var ólýsanlega falleg. Ég vona að henni líði vel núna, hvar sem hún er. Núna getur hún allt.. og ég er viss um að hún hefur vængi.

Í þessari ferð minni heim hefur mér tekist furðulega vel að hitta sem flesta og kremja þá vel og duglega :) Og þetta ætlar allt að passa ævintýralega vel saman, því þegar ég kem út verða gestirnir góðu sem eru búnir að vera þar núna í nokkra daga, ennþá í fullu fjöri á Kagså. ..mikið hlakka ég til að heyra í ísbílnum aftur =) ég varð bara að skjóta því inní.. fór að hugsa um dinglið í ísbílnum þegar ég skrifaði Kagså, það er einhver fiðringur sem fer um mig þegar ég heyri þetta dingl. Mér finnst ég vera fimm ára og að ekkert sé betra en að sjá brosið á kallinum í ísbílnum þegar hann réttir manni fullan kassa af ís. Gaman að vera fimm ára, stundum vildi ég að ég gæti verið fimm ára aftur. En já, það verður fullt hús þegar ég stíg fæti inní númer 35 annað kvöld. Ísak, Baldvin og Helgi eru búnir að hreiðra um sig "heima" þannig að það verður notalegt að koma.. haaaa stulli!? Enginn stulli.. hef ekkert hringt  í stulla og félaga god damn.. verð að muna eftir því áður en ég fer á morgun. Því það stendur til að við flytjum okkur til Bjarna nokkurs Þórissonar. Ef það verður ekki kostugleg sambúð þá veit ég ekki hvað. En ég ætti að fara að halla mér í rúmið mitt, áður en ég þarf að vakna. Góða nótt.