Ekkert blogg in the house of pain.. hahh nei ég get svarid tad madur hefur haft nog ad gera bara og ekki nennt ad ganga í gegnum tad sem tarf ad ganga í gegnum til ad komast á netid.. tad er ekki eins audvelt og tad hefur verid fyrir mig í gegnum tídina.. tó svo ad birkir sé búinn ad reynast okkur med eindæmum afar vel sem netskaffari.
Ég var ad vinna um helgina bara og sona.. hryllilegur dugnadur og djammadi øll kvøldin. Madur getur ýmislegt tó madur búi útí rassagati.. svo lengi sem madur kann á strætóbílana og dadrar vid leigubílstjórana eru allir vegir færir. Svefn er náttúrulega fyrir aumingja bara eins og flestir hafa nú gert sér grein fyrir. Nei ef ég á ad segja eins og er tá var ég ordin fremur treytt og er fremur treytt núna líka bara. Átti frí í gær samt sem var unadslegt.. og ég skellti mér í bæinn á bókasafnid.. sem stinkadi eins og súr skunkur med ofvirka svitakirtla.. hvad er málid med tølvuherbergi? Teim tekst einhvernveginn alltaf ad tétta svitalykt á tann hátt ad tad byrjar ad blæda úr nefinu á manni og svo lídur yfir mann. Soldid ótægilegt.. Vid fórum svo útad borda í gær.. flottar á tví keyptum okkur tilbod uppá triggja réttada máltíd. Ah svo gott.. kósý stadur, tyrkneskur.. tó var hann tannig ad madur fékk tad á tilfinninguna ad tetta fólk hafi svona verid ad spá í tví ad opna kebab stad en svo æji nei tad eru svo margir.. skellum saman einum svona veitingastad med bordum og kertum og eitthvad.. salatid var gúrka kál og tómatar.. og dressingin augljóslega keypt í Føtex en ég meina hey tad er ekki eins og ég hljómi eins og einhver snobber núna eda hvad? Ég sagdi allavega í byrjun ad stadurinn hafi verid mjøg kósý, sem hann og var med sinn brjáludu tyrknesku músík helv.. fínt bara gólfteppi uppeftir øllum veggjum.. hvada tyrkja datt tad fyrst í hug? já ég nennekki meira.. heim bara :)


<< Home