mánudagur, júní 14, 2004

Við erum jú komnar til Danmerkur og það gæti ekki verið betra hérna! Íbúðin er eins og klippt út úr ikea bæklingi, alveg mátulega stór með oggulitlu eldhúsi og baðherbergi með engum sturtubotni.. mjög danskt. Kollegiið er ótrúlega heimilislegt og flestar íbúðirnar geyma fjölskyldur af öllum stærðum og gerðum þannig að okkur líður ótrúlega öruggum hérna. Birkir er búinn að sýna okkur allt og hjálpa okkur það mikið að hann nálgast dýrðlingatöluna óðfluga.. til dæmis sit ég í tölvunni hjá honum núna bara :) En ég fór í vinnuna í dag og hlakka bara til að fara aftur á morgunn.. það er ótrúlega lúðalegur gaur að vinna með mér sem er með aflitað hár og, og.. jú gelað beint uppí loftið! Svalur ;) Svo var mér skipað að ná mér í hreint saka vottorð og eftir það var miðbærinn heimsóttur. Alltaf sama sveitta æsta stemmningin inní H&M.. crazy ass. Við erum náttúrulega búnar að taka nokkra túra í strætó og lestir og villast smávegis eins og gengur og gerist með margan Íslendinginn í útlöndunum.. en annars ekkert til að tala um. Veðrið í gær var frábært og við sváfum til tvö.. til hamingju. Bergþóra neyðist til að vakna klukkan 4 á nóttinni til þess að mæta í vinnu klukkan 5.. til hamingju aftur. Hún er hins vegar búin klukkan 10 en ég byrja klukkan átta.. hverjum er ekki sama? Ótrúlega leiðinleg setning sem endar samt þannig að jú það er bara einn lykill að íbúðinni.. sem er slæmt mál þegar vinnutímarnir skarast svona.. enn og aftur til hamingju! En þetta er orðið alltof kaldhæðið og leiðinlegt eitthvað miðað við hvað mér líður vel.. Eitt sem er ótrúlega lýsandi fyrir Danmörku og ég tók eftir um daginn.. eitt mest áberandi illgresið hérna eru lítil hvít sæt blóm sem vaxa allstaðar þar sem er gras.. á meðan Íslendingar berjast við fíbla (sem eru bara fallegir í fjarlægð) þá dunda Danir sér við það að binda blómakransa úr sínu illgresi.. ég er ekki að segja að ísland sé ömurleg.. meira bara að Danmörk sé sæt ;)