Þegar ég hugsa um ástand mitt núna þá vakna nokkar spurningar.. aaaaf hverju er ennþá svona mikið drazl hjá mér? Af því að ég er búin að vera í fríi í dag og njóta þess að vera ógeðslega löt. Af hverju er ég bara búin að þvo eina vél og ekki byrjuð að pakka? Af því að mér finnst ég hafa allan heimsins tíma (þrír dagar) ..og er löt. Af hverju eru allar glósurnar mínar svona ljótar og illa skipulagðar? Af því að ég er þrolli ..jú og löt. Ég sit hérna með hálf opin augun og sleftaum niðrá hægra brjóstið en samt ekki farin að sofa, af hverju? ..af því bloggmenningin gleypti mig eins og Seifur gleypti konuna sína þegar hún var ólétt af Aþenu. En af hverju slapp járnsmiðurinn undan glasinu sem ég setti yfir hann? ..pottþétt Óskari að kenna! Af hverju eru fötin mín alltaf útum allt og ekkert skipulag á fatageymslunni minni? Af því að ég geymi fötin í kommóðu sem ætti að vera notuð undir liti, kerti og spil en ekki 30 kíló af fötum sem komast ekki fyrir þar. Af hverju þarf allt að vera svona fallegt á Akureyri akkúrat núna þegar ég er að fara? Svo ég sakni hennar komi aftur :D ..af hverjer lífið svona ömurlegt? ætli það sé skárrí simbabve neihh.. segi svona.. af hverju kemur kusk í naflann á karlmönnum? Ég hef sjálf aldrei lent í þessu.. en hafði það að atvinnu að plokka naflaló úr nabblanum á pabba þegar ég var lítil, og er að heyra það frá fleiri fyrum að það safnist kusk í naflan á þeim.. hvernig stendur á þessu?! Fyndið að vera með kuskbolta í naflanum.. aehh ég á svo mikið nammi sko.. það er fáránlegt bara.. segji nú bara öskudagur up yours og sjoppuráð rúlar.. ef einhverjum langar í nammi þá getur hann komið í heimsókn undir því yfirskyni að segja bless við mig og ég ota að viðkomandi góðum slurk af nammi.. er ég nú farin að múta fólki til að koma og kveðja mig? haha sorglegt.. en þetta er orðin of löng færsla miðað við innihaldsleysi.. svo ég ætla að þurrka slefið og fara að sofa.. en svona til sidst, þá náði ég sögu með 7 hibb hibb húrra! :D


<< Home