mánudagur, maí 31, 2004

Mömmur

Þessa stundina er umræða pallborðsins hvaða mamma er svölust.. niðurstaða fékkst og mömmu Baldvins Karels hlotnast sú orða. Konan grípur til þess ráðs að búa til sín eigin orð þegar hana vanhagar eitthvað um orðaflóru íslenskunnar.. mörg skemmtileg orð hafa runnið uppúr henni Ingu Láru Baldvinsdóttur a.k.a. Gromsí (af hverju? ..ég veit það ekki) stundum Gromsí bolla.. og hér koma skilgreiningar á nokkrum þeirra:

Bibb (uppáhaldsorðiðmitt): Lítill óskilgreindur hlutur
Groðmúlgur: Maður sem étur eins og hann sé botnlaus í veislum eða matarboðum hjá öðru fólki (þar sem hann þarf ekki að borga neitt fyrir) en borðar eins og eitt og eitt títtuber heima hjá sér.
Húllibúbbi: óskilgreindur gaur
Bumbu Jói, stytting á Bumbu Jóhannes: Gaur með bumbu
Maggi Bjössi: Pabbans Baldvins sem heitir Magnús Karel
Reynholts: Foreldrar Gromsí
..æj er þetta ekki komið gott Inga Lára?! Neibb það eru til mun fleiri orð í safninu en ég ætla að láta þetta gott heita bara.


Solla mamma hennar Bergþóru hlýtur að teljast hressasta mamman.. Sólskinsbros og orðaflaumur sem einkennir þann bæinn.

Mamma mín er með sítt að aftan, en burt séð frá því þá ætla ég að tilnefna hana sem besta kokkinn því að hún er ástæða þess að ég get varla andað af seddu á þessari líðandi stundu.

Denna mamma hennar Helenu fær orðuna dæmalaus af því að það á svo vel við eitthvað..

Mamma hennar Helgu.. syngur eins og fagur fugl en tjáir dóttur sinni æðið oft að hún heillist af ungum pörupiltum.. sem betur fer er hún harðgift sögukennara í gagganum og þarf maður því ekki að óttast samkeppni frá henni.

Mamma hennar Sigurlaugar er skítsæmilegur barnaskólakennari í Mývatnssveit.. en hún er líka mamma þín.

Mamma hennar Elfu stelur fötunum mínum og fer á hestamannamót, Huldu fannst alltaf gaman að leyfa títlunum sínum og tætibuskunum að föndra með trölladeigi (góð saga) ..Hulda fær titilinn kjarnamamman af því að hún er kjarnakona.

..og fyrst ég er að tala um mömmur þá er ógerlegt að sleppa mömmans Stebba, Jóna Lísa kemur frá undralandi og er undursamlega góð, undravera hahh Lísa í undralandi bara! (..verð að fara að kaupa mér nýjan húmor) nei svona í alvöru þá er hún gull af góðri konu.

Er þetta gengið of langt ef ég fer að tala um Mömmu pabba míns? Kannski.. en hún varð að vera með af því að hún trónir á toppnum og ætti að vera með í ofurhetju partíum.

..ok búið og farðu að læra Lilý! :)