miðvikudagur, maí 26, 2004

~Stebbi á afmæli í dag~
Ég ákvað að hafa þennan titil á færslunni svo að þeir sem lesa þetta blogg viti það og muni aldrei gleyma því að þann 26.maí fæddist Stefán Guðnason.. fyrirgefðufjörtíusinnum Stebbi.. (ég er rass) og til lykke med dine tyve år!

Hérna já.. það er búið að vera geðbilaðslega óhugnarlega frábært veður hérna á eyrinni góðu og grænu síðustu þrjá daga eða jú síðan Menntskælingar byrjuðu í prófum.. samsæri? Ég skellti mér, ásamt fríðu föruneyti út í Kjarnaskóg í dag og lá þar í lognmollu innan um býflugur og blóm.. þó ekki í þeirri meiningu að fólk hafi verið að stunda kynmök í kringum mig (hvað er ég að segja?) já neinei hlussubýflugur og fíflar útum allt bara, bestu vinir mínir. Drap líka kónguló inní kompu og er að horfa á líkið af henni akkúrat núna, sem segir náttúrulega bara að ég geti pikkað á lyklaborð án þess að horfa, til hamingju Lilý með að hafa verið í 1.A.. æji.. Nei.. já hey 2 vikur í Köben.. kongens have og grøn tuborg mmmmmmmmm! ahh.. bleijur og gamalt fólk jájá.. próf ha já ok.. sofa já held það bara þegja jáh góð hugmynd!