sunnudagur, maí 23, 2004

Að lífið sé skálfandi lítill rass má lesa í kvæð'eftir pirrað skass! Hvahh ha! læra? Heimspeki?! Já á eftir bara, nei þú veist, ég meina, bara 5 mínútur, já rass.. sit inní kompu núna og ónefnd vinkona mín hefur setið hér og fretað linnulaust í allt kvöld. Ekkert búin að læra heldur. Neibb.. en við höfum afrekað margt annað. Gerðum geggjað símaat í Salvari og hann var alveg að verða stjörnu-snar-vitlaus þegar hann loksins fattaði að það vorum við sem vorum að hringja inní símakompu á 3 mínútna fresti.. soldið pirrandi. Svo hann svaraði í sömu mynt og hringdi látlaust hingað. Orðið soldið þreytt á endanum þegar ég svaraði í 7 skiptið: Þetter búið, þetter svo búið. Og skellti á. Hringdi svo aftur rjóð í kinnum og prakkaraleg á svipinn í 8 skipti og bjóst innilega við því að hann sæti við símtólið, en nei hann kom inn alveg brjálaður og stóð fast á þeirri meiningu að hann hefði ekki verið að hringja. Við trúðum honum að sjálfsögðu ekki þar sem hann er konungur rassana og hlógum þess vegna að honum lengi eða samt ekki svo lengi því síminn hringdi aftur á meðan hann stóð öskrandi á okkur að þetta hefði ekki verið hann. Þá vorum við sannfærðar um að þetta væri Helgi Vilberg og ég svaraði í símann. Neibb ekki svo mikið Helgi þar á ferð.. neinei Jóna Lísa prestur og príðiskona haldandi það að einhver aum stúlka hafi verið að kalla á hjálp í sjálfsmorðshugleiðingum, þetter búið, þetter svo búið!