mánudagur, maí 10, 2004

Ég sit hérna á brókinni, ekki enn farin að sofa en með hugann svo mikið undir sæng að seint verður sæng meira yfir höfuð hafin.. eða eitthvað svoleiðis. Ég er semsagt sofandi í hausnum. Sé fyrir mér hvað ég verð pirruð í fyrramálið þegar ég vakna með sterka löngun til að sofa í 10 tíma í viðbót vitandi það að ég hefði vel getað sofnað fyrr. Það sem er mest pirrandi við þessar aðstæður er það að vita að maður veit, reyndar er yfirleitt alltaf mest pirrandi að vita að maður viti í hvaða aðstæðum sem maður lendir. Það er nú svo furðulegt. En líka að vita að maður hefði getað vitað ef farið er útí þá sálma. En þegar allt kemur til alls er maður kannski bara vitlaus, hver veit?