sunnudagur, maí 02, 2004

Hey vá! Aldrei hef ég aldrei upplifað jafn langan sunnudag! Vaknaði upp í morgunn um áttaleytið og fann að allt var eitthvað asnalegt svo ég ákvað að vera asnaleg í dag í asnalegu skapi.. fékk mér eyru, hala og leitaði að Maríu mey til að bera en fann hana ekki.. reyndi svo með hugarorku að vekja fólk í Kogsbölle en allt kom fyrir ekki.. enda þau örugglega pottþétt löngu vöknuð. Þetta munu sennilega fáir skilja en þannig er lífið maður skilur ekki allt. Til dæmis skil ég ekki hvernig ég á að túlka þessar djúpu, góðu og afar vel framsettu pælingar um guð. Reyndar veit ég ekki alveg hvernig maður á að taka því að svona síður séu í alvörunni til og fólki sé svona sama um hvernig það skrifar. Ég er ekki að halda því fram að ég sé með fullkomna stafsetningu og frábært málfar en fyrr má nú aldeilis vera.. ég hélt að útlendingum væri bara leyfilegt að skrifa svona vitlausa íslensku. Er hægt að kalla sig Íslending, skrifandi svona? Æjégveitþaðekki! Hvert er æskan að fara.. hvert fer íslenskan með þessari kynslóð?! :O Það liggur við að maður gerist íslenskukennari eingöngu til að reyna að hindra þessa þróun. Allavega þá blöskrar mér illilega yfir þessu og ég vona að ég sé ekki ein um þau viðbrögð. Reyndar viðurkenni ég að hafa grenja úr hlátri yfir þessari heimsku.. en það er önnur saga.