Ég byrjaði þennan dag svo illa og hann hefur bara verið pirrandi síðan. Ég svaf feitt yfir mig og varð fúl við sjálfa mig og fór í skólann. Á enn eftir aðklára súrt íslenskuverkefni og er að vera biluð yfir því, herbergið mitt er ógeð og fullt af klósettpappír, Muninn á að koma út eftir 8 daga, ég þarf að vinna um helgina, það er komin kúkalykt af mætingunni minni, innistæðan mín er að verða búin, tómatsósan sem er til er svo vond, og almennt bögg er yfirgnæfandi. Svona hefur mér liðið í dag og það er óþolandi, skapvonska er óþolandi! Vildi að ég gæti farið í berjamó núna..


<< Home