Það styttist óðum í páskafrí en ég get ekki tæmt hugann minn fyrir tilhlökkun því það herja á mann ótal verkefni ásamt 48.000 klósett pappírsrúllum sem ég þarf að finna stað fyrir :S ..ef einhver er með laust pláss í bílskúrnum sínum eða neðanjarðar hellum þá væri það vel þegið, ef leigan er frí :D en hey þetta reddast ;)
Mikið vildi ég að ég hefði gefið mér tíma til að kynnast honum Kant örlítið fyrr, hann virðist hafa verið maður með viti. Allavega eftir það sem ég hef komist í gegnum þá hef ég mikið álit á honum. Og hef komist að þeirri niðurstöðu að enginn verði verri af því að lesa og skilja nokkrar línur eftir Kant.
Haltu heilum huga,
þett'er ekki lengi að líða.
drengur deyja eða duga,
hvers er að bíða.
..já ég veit ekki hvaðan þetta kom.


<< Home