Jæja já.. ég er lasin í dag. En á morgun verð ég svo stál sleginn að Magnús Ver gæti kýlt mig í magann og ég myndi ekki haggast! Það verður brunað í átt að höfuðstað klakans stundvíslega eins og ávallt kl. 12:30 á morgunn og ég er komin með fiðring í magann og tærnar! Verst að komast ekki í skólann í kvöld til að fylgjast með Djúpu laugar dramanu sem maður er búin að vera að skipuleggja. En ég get ekki sagt annað en að fólk ætti bara drífa sig og fá sér draum og diet pefsí á þrusu tilboði. Sjoppan er náttúrulega alveg milljón! Annars kostar 400 kall inn þannig að fólk sem á bót fyrir boruna á sér hefur enga afsökun til að fara ekki fyrir þetta gjafaverð. Þá vona ég að boðskapur dagsins hafi komist til skila. Þiggja allt sem þriðjabekkjarráð bíður uppá, þó það kosti peninga! ;) ..hvort ætti ég nú að lesa, Heimspeki Kants eða Sjálfstætt Fólk? Ég hreinlega get ekki gert það upp við mig svo ég ætla bara dæsa drungalega og troða bómull á milli tánna á mér.


<< Home