ég var að horfa á 70 mínútur og tók eftir einu sem mér fannst sérlega jákvætt. Þegar þessir apakettir fá einhvern frægan gest til sín, eins og í kvöld var þar hjá þeim Baltasar "kynþokki" Kormákur, þá draga þeir þá alltaf á gamla vinnustaði. Balti var dreginn á einhverja blikksmiðju og hann rifjaði líka upp að hann hafi verið í byggingarvinnu hérna í den tid. Mér finnst þetta gefa fólki tækifæri á því að átta sig á því að fræga fólkið er líka fólk með svipaða reynslu og við. Allt fólk er fólk.


<< Home