föstudagur, febrúar 20, 2004

Hár er bara fyndið.. það er allstaðar.. maður er með hár á tánum!!! Og til hvers?! Já ég veit það ekki en mér finnst það fyndið, það eru lang lang flestir með hár einhverstaðar og flestir útum allt helling á hausnum og svo bara útum allan líkama og ef við sjáum þau ekki þá er það bara af því að þau eru svo lítil og ljós.. en þau eru samt þarna. Sumir haaata hár.. hata að fá það framan í sig.. hata að fá hárlos.. hata að fá hárbolta uppí sig í sundi.. hata að þurfa alltaf að raka sig.. hata að vera með grátt hár.. hata þegar liturinn vex úr.. sumir eeelska líka að vera með sítt hár og greiða sér.. elska að prjóna e-ð úr hári (oj).. elska að láta fikta í hárinu á sér.. elska að fikta í hárinu á öðrum.. elska bringuhár.. elska ketti af því að þeir eru með svo mjúk hár. Já það er morgunljóst að hár er afar umdeilt og merkilegt fyrirbæri sem ég er hinsvegar hætt við að gera fyrilestur um. Veit ekki af hverju en ég held að það sé bara auðveldara að gera um Sókrates og hef því frekar veðjað á hann bara.

Annars var ég á arfaslakri söngkeppni í kvöld. Ég brá mér uppí VMA með valinkunnum vinkonum mínum og ég hef sjaldan séð annað eins.. við nenntum ekki einu sinni að bíða eftir úrslitum! Þeir sem sungu ekki hræðilega illa sungu bara viðunandi eða þ.e.a.s. þannig að þeir ákváðu bara að taka enga áhættu á að verða falskir svo þeir héldu bara sömu hæðinni út allt lagið. Afar líflegt og hresst. Svo talaði fólk óendanlega mikið þegar það var verið að flytja lögin svo það varð allt saman hálf pínlegt. Það var einn keppandi sem átti eitthvað skilið að vinna og hann vann líka. Hann söng afar vel en var líka sá eini sem mér fannst eitthvað til koma. Arfaslök keppni í heildina séð þó svo að það hafi alveg verið fólk þarna sem getur sungið ef það þjálfar burtu stress og upp kjark.

Morfís keppnin við Verzló er næsta föstudag fyrir sunnan og ég held bara að það sé þrusu stemming fyrir að skrölta suður í einhverjum rútugarmi.. þetta eru nú einu sinni undanúrslit! Það er bara að vona að maður komist :) Annars held ég bara að það sé í vændum rólegur dagur á morgunn.. liðveisla, baka köku, flytja ógerðan fyrirlestur, farí bíó á Along came Sally með munins liðinu og brosa útí heiminn =)