ég kláraði jólabókina í gærkvöldi.. nótt jafnvel.. af hverju sný ég sólarhringnum alltaf við þegar ég fer í frí? hmmm.. já sú bók ber nafnið Dætur Kína og er einkar góð lesning.. mig grunar samt sem áður að hún sé betri á því máli sennilega er það kínversku sem hún hefur verið skrifuð á.. því að já ég held bara að hún sé betur skrifuð en þýdd.. en engu að síður mjög snertandi bók.. og ég hef ekki trú á því að maður geti skilið þjáningar þessara kvenna með því einu að liggja undir hlýrri sæng og lesa vel skrifaða bók um pyntingar á þeim og hvernig lífi þeirra hefur verið snúið upp í hvirfilbil sem þær geta ekki með nokkru móti stoppað.. sterk samkennd kviknaði þó hjá mér enda ekki annað hægt.. Skelfileg vitneskja en góð bók.


<< Home