helgin er á enda runnin og ég er allt annað en útbrunnin.. þessi helgi hefur verið algjört gúmmelaði bara búin að vera gera allt annað en að gera eitthvað.. eða svona hér um bil.. foreldrakaffi á laugardaginn sem ég þurfti að vaska upp eftir og svona hafa sjón yfir.. í dag var ekkert sem ég var bundin yfir svo ég bakaði bara bananaköku sem reyndist vera ógirnilegasta kaka í öllum heiminum.. en ég bakaði líka vöfflur sem redduðu þessu alveg :) kvöldmaturinn var svona heldur ógeðslegur steiktur biximatur eða eitthvað þannig og húsið angar af ylmandi steikingarbrælu sem verður vonandi farin á morgun.. á morgun fer ég í skólan áður en ég tek mér laaaangt hlé til að slappa af og leyfa hálsinum á mér að gróa eftir hálskirtla fjarlægingu.. ís og jógúrt verður málið! já og í kvöld kvaddi ég Jónu Lísu sem er gull af góðri konu ef ég get orðað það þannig.. síðasta æðruleysismessan hennar í bili var í kvöld og ég á eftir að sakna þeirra og hennar mikið en hún kemur aftur :)
sem sagt hefur þessi helgi án foreldra verið ágæt en matarkyns hreint ekkert sérstök.. ég hlakka bara til að fá þau gömlu aftur í kotið.. :))


<< Home