Hey vá maður skólinn ER byrjaður.. fyrir fullt og allt og það verður tæplega aftur snúið! Fyrirlestra verkefnin hrúgast upp og maður hefur ekki undan við að hugsa um rækjur, sparigatsþurrkur, boli - peysur, snjómokstur, maraþon og fleir og fleira.. svo ég tali nú ekki umm að skófla rusli útúr sjoppunni sem hefur fengið að safnast þar upp í hálfan mánuð og eins og gefur að skilja er farið að lykta heldur ókræsilega! Tetta var ég að athafast í dag.. sjoppan var ógeð! ógið ógið ógið.. og svo voru aumingja rósirnar frá því á busaballinu farnar að rotna eftir tveggjavikna dvöl inní kompu í ruslapoka.. þvílíkt ógeð! Já skipulagið hefur augljóslega ekki verið í framsætinu hjá okkur eeehemmm.. en það stendur til bóta.. einhvernveginn er eins og allir hafi haldið að allir hinir væru að gera allt þangað til annað kom á daginn í dag.. annars fæ ég svo staðfestingu á því hvort ég þurfi alveg nauðsynlega að fara í ógeðins hálskirtla úrtöku eða ekki á morgun og ég krossa allt sem krossað get fyrir því.. bara búin að heyra eitthvað ógeð.. hvað ætli ég sé búin að skrifa oft ógeð í þessa færslu? ..annars er orðið duglega langt síðan ég hef eitthvað fært inn.. í rauninni bara jafn langt og rósirnar fengu leyfi til að liggja! oj bara oj bara oj bara ullabjakk! Mamma og pabbi eru að fara út til kære köben um þar næstu helgi.. öfundin skín frá mér alla daga allan daginn.. en nú tekur við söguverkefni ind til næste gang -farvel-


<< Home