laugardagur, október 25, 2003

Það er ekki laust við það að pirringur sé að hrjá mig djúpt niður í innstu taugar.. þessi hálskirtla úrrífing er sko ekkert djók og ef einhver heldur að það sé sniðugt að fara og láta rífa úr sér hálskirtlana þá er það bara misskilningur og ekkert annað! áður en ég var búin að kynnast eftirköstunum sá ég í hillingum þvílíkt sniðuga grenningu.. já maður ég hlýt að léttast helling ef ég er bara á fljótandi fæði í viku - tíu daga! SNIÐUGT! NEI!! þvílíkar kvalir! á fjórða degi líður mér eins og ég sé að kyngja hnífum alltaf og að þeir hoppi upp í eyrnagöngin á mér um leið og slefið er komið hálfa leið niður kokið öööö óþverri og viðbjóður! Svo er ég svoooo svöng að ef einhver minnist á eitthvað matarkyns þó það sé ekki einu sinni matur bara t.d. popp tv þá á sá hinn sami von á hatursfullu augnarráði.. kvöldmatartíminn er versti tími dagsins.. þegar húsið fyllist ylmandi lykt af krydduðum bökuðum kartöflum og grilluðum silungi eða Freshetta pítsu.. þá fara bragðlaukarnir í alvöru á fullt skrið og ég hef ekkert uppúr því nema bara enn meiri svengd og vatn í munninn sem ég þarf að kyngja! þegar þetta ógeð er búið þá á ég örugglega eftir að sprengja í mér magan á hlaðborði einhversstaðar!