ég er óforskammaður letibloggari sem þýðir að ég skammast mín ekkert fyrir að vera löt að blogga ég veit það vel.. stundum velti ég fyrir mér af hverju ég sé með þetta blogg.. ég nenni aldrei að blogga og þegar ég geri það.. þá er það bara einhver innantóm þvæla! Kannski ég hætti þessu bara einn daginn hver veit.. en ekki strax :þ
ho ho ho það eru jól og gleðileg jól! Þetta eru búin að vera mjög róleg og afslöppuð jól með bók undir sæng þangað til í gær.. þá skellti ég mér á sveitt svartra fata ball í sjallanum það var stuð.. the Ben's tóku mig með á tjúttið og það er hreint ekki leiðinlegt að tjútta með þeim :) En jólin.. ég áttaði mig á því í ár að þessi barnalega tilhlökkun í maganum á sennilega ekkert eftir að koma aftur.. ég er búin að furða mig á því síðustu tvö ár af hverju hún sé ekki til staðar en ég held að ég sé komin til botns í þessu máli.. maður þroskast víst og verður ekki barn um allan aldur.. þó að maður ríg haldi í suma hluti og þroskast sennilega seint uppúr þeim.. eins og að það megi ekki sleppa því að mála piparkökur og að það verði að búa til piparkökuhús og fleira í þeim dúr sem skiptir engu máli.. ahh já gaman að hitta Ester í gær og fullt fullt af gömlum MA-ingum sem ekki hefur sést til lengi voru í banastuði í gær :) ..styttist óðum í áramótin!


<< Home