Hvað fær fólk til að fara á eitthvað sem er bendlað við love gúrú?? ..forvitni æh ég veit það ekki.. mér finnst þetta nafn nú ekkert forvitnilegt.. en mér leikur forvitni á að vita hvað fékk mig til að fara í svokallað love gúrú partí í gærkvöldi! Þarna voru gellur í brókarpilsum.. með kanínu eyru að keppast um dildóa!! rush ilmurinn svífandi yfir öllu.. tvær bimbó gellur uppá sviði í lesbískum dansi og jón óskar fyrir framan að taka myndir.. ógeðslegur kall sem ég held að hafi verið love gúrú í gulum glans íþróttagalla með sólglerugu með gulu gleri og svona pimpa skegg í rönd.. kynlífsleikfangasala.. ógeðslegir dúdar sem mundu fara uppá hverja og jafnvel hvað sem er útum allt!! ég get ekki líst ógeði mínu á þessu með orðum.. mikið vildi ég að ég hefði vitað hvernig þetta var áður en ég fór að borga mig inn á þennan sora!
..mér leið eins og ég væri föst í potti þar sem væri verið að malla greddu graut frá helvíti.. þangað til ég áttaði mig á því að það var ekki flókið að labba út aftur! En að þetta skuli vera til.. ég trúi því varla!


<< Home