hressleikinn kom yfir mig til allrar hamingju í gær :) ég varð miklu skárri og er búin að vera sæmileg í dag líka.. vonandi kemst ég í skólann á föstudaginn en það kemur í ljós.. annars var ég að horfa á ótrúlega skemmtilega þætti í morgun sem Anna lánaði mér.. þeir heita "The Human Face" og eru eftir John Cleese.. fjalla um andlitið sem sé og svipbrigði og fleira áhugavert og það kom fram í einum þættinum að það væri einhver kall á Indlandi sem kom með þá frábæru hugmynd að stofna hláturhópa.. mér finnst þetta alveg maaagnað! fólk hittist alltaf á morgnanna áður en það fer í skóla eða vinnu og hlær saman í 15 mínútur :D það eru 600 svona hópar á Indlandi og 800 í heiminum öllum! Það væri alveg geggjað að byrja daginn á því að skellihlægja með hlægjihópnum sínum á hverjum morgni áður en haldið af stað útí amstur dagsins! svo nú er bara spurning um að stofna HAHAma á næsta ári ;)


<< Home