föstudagur, janúar 16, 2004

Eftir uppljóstur gærdagsins fór ég að vinna í mínum málum fyrrverandi heitmaður móður ástmanns míns var ekki bróðir minn eftir allt svo þá stendur ekkert í veginum fyrir því að ég og Roger Thorp getum sameinað líkama okkar og sálir!!! ..svo já ég mun snúa aftur!

Ahh annars er ég endurnærð.. nýkomin úr fjallinu, búin að vera þar svífandi um í hinu mesta frelsi. Mér leið hreinlega eins og drottningu norðursins, þar sem ég var með lang tignarlegasta útbúnaðinn á svæðinu.. þessi útbúnaður stóð saman af: Grænum skíðum, nei neongrænum skíðum, skíðastöfum frá því um 1970, lopahúfunni góðu, og jú alltof litlum snjóbuxum.. jájá ég drottnaði yfir öllum brettalingunum.. þeir meira að segja vottuðu mér virðingu sýna með því að rétta út aðra hendina og gefa frá sér eitthvað hljóð sem minnti einna helst á hlátur! Gott að geta skemmt öðru fólki :)

Af prófunum er lítið að segja annað en að þetta hefst allt saman á endanum og slagorðið sem afgreiðslu álfarnir völdu fyrir þessa vikuna finnst mér einkar laglegt. Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga! Já það er víst ábyggilegt! 3 próf eftir og eitt þyngra en steypireiður! Nei ég er ekki að ljúga.. nei í alvöru.. íslenska 403.. er til leiðinlegri og lengri áfangi?! össs.. maður hellir sér út í þá vitleysu á mánudag og þriðjudag en þangað til kemst ekkert að nema sálfræði! ..þ.e.a.s. þegar Idol er búið ;) ..ætli Anna Katrín (akureyringur) vinni? :D