þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Skólinn er kominn á fullt skrið og ef hann væri skriðjökull þá mundi hann mala alla hina skriðjöklana! Mér líst í heildina séð mjög vel á þetta allt saman og hef ákveðið að standa mig betur og læra vel og vandlega heima, fara að sofa á kristinlegum tíma, borða hollan og góðan mat og mæta alltaf í skólann.. hvern er ég að blekkja? Ég verð að setja aðeins raunhæfari markmið, þau hljóða nú samt svona allt að þessu en ég geri ráð fyrir einhverri skekkju.. Annars er ég að byrja vel.. lærði heima í dag fyrsti dagurinn nb. og er búin að skúra allar kompur sem ég kem að á einhvern hátt svo ég tel mig vera að standa mig enn sem komið er.. þó ég hafi misskilið aðeins sem varð þess valdandi að ég mætti ekki í fyrsta tímann.. það gerist bara ekki aftur, maður lærir jú af mistökunum.. undur og merkilegheit dagsins eru þau að ég vaknaði með stóran brúnan blett á hendinni yfir púlsinum og upp eftir hendinni.. hvað þetta er veit ég ekki því ég hef hvergi komið nálægt neinu brúnkukremi! Dularfullt.. þvæst ekki af með nokkru móti!

Annars hef ég ekkert bloggað síðan prófin voru búin.. svo ég ætla bara að koma því að hvað ég skemmti mér geisivel í fínu klippipartíi hjá Elfu og síðar á Dátanum og Tikk Takk klikkaði ekki frekar en fyrri daginn! Skemmtilegt kvöld og fín klipping =)