Ég fékk eina furðulega heimsókn í dag.. ef heimsókn skyldi kalla! Við vorum í mestu makindum uppi í eldhúsi að hakka í okkur gómsætar skonsur systkinin þegar það er bankað á hurðina niðri.. við höldum bara að þetta sé einhver af vinum stákanna eins og vanalega þegar við erum að borða eitthvað.. og spangólum kom inn í kór.. inn kemur feitlaginn kona með prjónaðan trefil á höfðinu.. afar furðuleg og spyr heldur kindarlega hvort þetta sé ekki inngangurinn í bílskúrinn.. nei segi ég.. nú á maður bara að banka á bílskúrinn ef maður vill tala við einhvern þar? ..hvern ætlarðu að tala við í bílskúrnum spyr ég.. ja ég hringdi hérna áðan og talaði við karlmann.. jájá um hvað talaðirðu við hann? ..ehh hmm um skó ..um skó!!!? haha ég held að þú sért nú eitthvað að villast! þá lokaði hún hurðinni og sagði ekki einu sinni vertu sæl! ..stóð svo útá bílaplani í svona korter ..hvað var á bakvið þessa undarlegu "skó heimsókn" það veit ég ekki en engu að síður gaman að svona fólki :)


<< Home