laugardagur, mars 13, 2004

Já ég er alveg arfaslök í þessu bloggeríi núna. Hvað veldur veit ég ekki.. kannski bara leti og aumingjaskapur. En jájá í gær fór ég á þrusu tónleika á Down under. Því miður missti ég af Kingstone spila en ég náði að sjá Múskat allan tíman og þau voru drullu góð með ,,Drulluna í hausnum á mér", massa skemmtilegt lag! Svo var ég að átta mig á því af hverju ég vaknaði með svona heyftarlegan hálsríg í morgun og er reyndar með hann en, en það er líklega af því að ég missti mig aðeins í hárþeytingi og höfuð hnykkjum þarna í gær. Geðveikt gaman vá! Svo er ég bara byrjuð að hlakka til kvöldsins. Það verður ammælispartí hjá Elfu, tileinkað Baldvini og Sveini, dúndrandi stemming og allir á kantinum bara.

Greinilegt að menn muna eftir mínu fagra handarhlaupi sem ég tók um dagana =) Það er náttúrulega ekkert nema bara gott og blessað. Annars langar mig að vekja athygli á nýjum bloggara en það er engin önnur en Helena Hafþórsdóttir a.k.a. Helly Hansen, um að gera að líta á grúppíufantasíur hennar ;) Annars er ég svo dofin eitthvað núna að ég ætla bara að segja þetta gott.