laugardagur, febrúar 28, 2004

yndisleg helgi.. mér er orðið óglatt af poppi, það gerist ekki nema maður borði tvo poka af því á tryllings hraða! klukkan er tuttugu mínútur í fjögur.. skjáleikurinn í gangi og Bergþóra væri orðin milli ef hún hefði bara hringt! Tryllt lag við skjáleikinn og nýr dans hefur verið saminn af því tilefni.. sokkabuxurnar veita innblásturinn.. þvottur í þvottavélinni en þó hefur ekki verið ryksugað.. svo er bara að mæta í rútuna kl. hálf níu eða hvað?!

Geggjað nei gjjjeeeeðúveikt gaman í gær sjitt maður vá! Þrátt fyrir svekkelsi í byrjun kvöldsins.. við mættum alltof seint á mínus tónleikana og misstum þessvegna af múskat aðal hljómsveitinni hita upp.. fari þakð kolbölvað! En það var ekki slæmt að sjá mínus trylla mann og annan.. það jaðraði nú líka við trylling annari stóru tánni á mér sjálfri.. þegar hin fagra bygging verkmenntaskólans var yfirgefin lá leiðin á hin margrómaða fimmtudagsstað bæjarins.. þar var kátína mikil og mannfögnuður góður.. Mínus mættu á svæðið og drógu til sín margar meyjarnar.. sjitt já og Máni bað önnu og kára um demó disk og að vonum hoppuðu þau hæð sína af gleði og hamingju.. og fleiri með þeim.. einhvernveginn fórum við svo í partí í mýrarvegi ásamt fleirum.. nenntum samt ekki að endasendast niðrí norðurgötu eftir það svo við fórum heim og fengum okkur spagettí..

Á morgun er stefnan sett á að mæta hress niðrí skóla klukkan hálf níu og vera tryllt hress í rútu á leið í borg skelfingarinnar.. hress tryllingur stress hryllingur.. já svo er bara að vona að morfís fari sið- og sómasamlega fram og einnig má maður vona að vinnum keppnina! En allavega verður hresst fjör vá gaman!