mánudagur, mars 22, 2004

Ferðasaga

Nú er ég komin frá Reykjavík aftur og sest við skrifborðið. Ég held ég verði að segja aðeins frá þessari ferð minni til borgarinnar þar sem sólin skín skært, fangelsi er breytt í skóla, 15.000 manna líkamsræktarstöð er reyst, sundlaugar eru faldar fyrir saklausum Akureyringum, gosið er vatnsblandað og jú, þar sem Jói Fel býr. Ef einhver er farinn að spá í því hvaða rútufyrirtæki við völdum í þetta skiptið þá getur sá hinn sami farið að kætast þegar ég segji jú við völdum rassarútufyrirtækið abus. Helvítið á þeim.. við vorum mitt á milli Varmahlíðar og Blönduós þegar hvað gerðist? Akkúrat! Drifskaftið hrundi í allri sinni dýrð undan rútu gemlingnum! Menn voru miskátir með þetta, en flest héldum við þó ró okkar. Róin var reyndar eitthvað orðin óþolinmóð þegar við vorum búin að bíða í klukkutíma, vitandi það að það væri rúta á leiðinni frá Akureyri sem þýddi allavega hálftíma í viðbót! Með eindæmum yndislegt. Þegar nýja rútan kom sem hefur sennilega verið hérumbil 25 ára gömul setti blessaður bílstjórinn bara í 5. gír og brunaði í einni hendingu suður. Þess má þó til gamans geta að hin rútan var stoppuð á 116 km/klst sem segir bara það að þessir bílstjórar eru enganveginn til fyrirmyndar. En hvað um það, við komumst með naumindum í leikhúsið í tæka tíð, öll ógeðslega úldin og ósamkvæmishæf. En við létum það ekki á okkur fá og skemmtum okkur flest, konunglega á Eldað með Elvis. Það leikrit verður að segjast afar steikt og klámfengið, fyndið og furðulegt. Mest langar mig að vita hver skrifaði það því sá hinn sami hlýtur að vera vel þeyttur í hausnum. Eftir leikhúsið fórum við uppí emm ess og "komum okkur fyrir" í stofu með einhverjum busastrákum, skiptum um föt og heyrðum í skrýlnum. Það kom svo á daginn að við þyrftum að redda okkur uppí Grafarvog til Reynis þar sem hann, Georg, Selma og Ísak sátu og þömbuðu djús. Við vorum svo ótrúlega heppnar að hitta á hann Andrés sem ég skýrði númer eitt í símaskránni minni af því að hann var svo yndislegur að nenna að skutla okkur og sækja okkur líka án þessa að þekkja okkur neitt, takk fyrir það Andrés. Þegar við komum til Reynis var Ísak að elda sér pítsu og þegar hún var tilbúin drekkti hann henni fólskulega í tómatsósu, viðstöddum til viðbjóðs. Reynir og Georg voru aftur að undrast yfir einhverju skeit myndbandi (sem enginn skeit þó í.. sem betur fer) þar sem gæjinn skeitaði á einhverju handriði og svo kom hann alltí í einu úr annari átt líka. Þetta er dæmi um það að klippigræjur virka en ekki það að skeitarinn sé töframaður, þó það sé ekkert nema eðlilegt að halda því fram svosum. Ennþá eðlilegra er líka að finna út hver klippti myndbandið og HRINGJA í hann til að spyrja hvernig þeir hefðu farið að þessu! Jeminn eini. Nú Andrés kom svo í góðmennsku sinni og náði í okkur aftur uppí Grafarvog og skutlaði okkur til Fidda. Þar voru þeir Siggeir, BívarK, Baldvin Karel og Fiddi sjálfur. Við vorum hressar á kantinum bara. Þar til ég sofnaði svo óvart í rokk fíling á rúminu hans Baldvins. Hvernig þeir komu mér inn í stofu veit ég aftur ekki en þar vaknaði ég í sófanum þar sem Siggeir hafði breytt fallega yfir mig. Útaf þessu misstum við einmitt af sundferðinni sem við hefðum fengið ókeypis. Vá þessi ferðasaga verður eitthvað lengri en ég ætlaði mér. best að gera greinaskil þar sem nú eru dagaskipi =)

Já, við byrjuðum daginn á Subway þar sem við fengum mjög ljúfenga báta með vel af mæjónesi. Ákváðum svo að skella okkur í sund og drápum næstum konu á leiðinni þangað, hún var á hjóli og mjög utan við okkur og allstaðar fyrir henni. Svo héldum við að nýja World class húsið væri Laugardalslaugin og gerðum okkur þannig að feitum fíflum. Hvað á maður að halda þegar maður horfir í gegnum glugga á einhverju húsi og það virkar eins og það sé sundlaug í bakgarðinum?! En þetta er allt í lagi við erum nú einu sinni frá Akureyri! Við völdum að sjálfsögðu vitlausa skápa og gróðursettum fötin okkar í einhverjum barnaskápum sem peningarnir okkar pössuðu ekki í. Í sundi var tattoo tryllingur og maður stakk verulega í stúf þarna ekki með neitt fiðrildi yfir öllum maganum og ekki með tribal yfir hálfu bakinu. Sólin skein og teiknaði þrjár freknur framan í mig =) Þegar við vorum orðnar vel ferskar og búnar í sundi föttuðum við að við vorum afar aura litlar og áttum enga inneign. Allt gengið var niðrí bæ að sötra kakó niðrí kaffibrennslu meðan við Helena vorum eins og verstu tíundubekkingarónar í dúnúlpum með bakpoka. Anna og Bergþóra hringdu á bilinu 5 til 9 sinnum aðalega til að vita hvar við værum þá og þá stundina. Okkur langaði verulega að komast niðrí bæ og hitta klikkuðu krakkana og Odd sem var þarna með þeim og þess vegna ákváðum við að reyna að húkka okkur far. En nei allt kom fyrir ekki, og vil ég kenna dúnúlpunum um það. Við kjögruðum eitthvað um þar til við fundum að endingu banka og Helena komst að því að hún hafði ekki efni á inneign, svo slæmt var það.. og fjárhagsstaða mín var ekki mikið skárri. Við héldum eitthvað áfram og löbbuðum inní einhverja vídjóleigu þar sem ég gat keypt mér inneign og hringt í Fidda sem gerðist hetja dagsins og bjargaði okkur úr klóm eymdar og vonleysis. Á vídjóleigunni keypti Helena sér líka bland í poka fyrir hvahh jú 19 krónur og ég fékk þau til að gefa mér vatn í flösku. Við komumst niðrá Kaffibrennslu eftir allt saman og hittum Odd =) ..mjög ánægjulegt. Í kvöldmatinn fengum við pítsur á Pitza Hut og vatnsþynnt gos sem var með öllu ódrekkandi. Annars voru allir bara hressir og það var smellt af nokkrum rassamyndum þar. Rútan henti okkur svo aftur uppí MS. Um kvöldið kom Ester og náði í okkur. Við rúntuðum soltið með henni og hún var feiki hress eins og ávallt þessi elska. Hún skutlaði okkur svo aftur til Fidda þar sem við sofnuðum óvart aftur! Hvað er þetta?! Ekki það að það hafi verið leiðinlegt og ekki fyrir okkur haft. Þvert á móti var mammans færandi okkur niður allskyns nasl og hún gekk meira að segja það langt hún Ingibjörg að baka heitan rétt klukkan tvö um nóttina og færa okkur. Augljóslega gull af manneskju. En jújú.. Helena og Bergþóra sofnuðu og við Baldvin töluðum um bibb og popp.. bjúgu voru elduð og kertin kláruð.. fólk var óeðlilega auðtrúa í þessari ferð en fólk er hún Þorgerður Anna Björnsdóttir góð vinkona mín =) Hver annar hefði trúað því að Baldvin Karel hafi eldað Gourmet hrossabjúgu soðið uppstúf og kartöflur og setið og beðið eftir henni?! haha hún er yndisleg. Myndarleiki helgarinnar verður að falla til Friðjóns þar sem honum leið svo myndarlega þegar hann vaknaði í morgun. Svo var röddin eitthvað svo rám og riddaraleg. Ég verð líka að nefna það að gulróta kakan hans Jóa Fel er algjör killer. Friðjón fór nefnilega í bakaríið í morgun og kom klifjaður til baka, gestrisnin geislaði af þeim mæðginum. Ég ætla bara að enda þessa löngu færslu sem fæstir nenna sennilega að lesa á því að þakka öllum þeim sem voru kósí um helgina, og Helenu fyrir að byggja upp sjálfstraust hjá mér, ég get sennilega aldrei þakkað henni nægilega fyrir það. En allavega takk fyrir mig.