Senn líður að lokum þessa páskafrís og hvað þá?! hvað þá?! jú þá hrannast upp á skalla mér óloknar bækur og fjandans greinagerðir munnleg próf og já bara allar tegundir óbjóðar! Ég get náttúrulega ekki kennt neinu nema leti og óforskömm minni um þennan djúpa drullupytt sem ég mun reyna að busla mér uppúr. Ég veit ekki hvernig því Helga sund var ekkert góður kennari og á ógeðisljóta heklaða hlýraboli sem hrellir lifrina úr litlum nemendum hennar svo þeir hafa ekki lyst á því að læra að synda hjá henni! Já þetta er dagur reiðinar, allavega núna.. hmmm ætti samt ekki að vera það þar sem þetta er páskadagur og ég fékk páskaegg í dag. Alltaf skal málshátturinn líka eiga jafn vel við mig. Í dag var ég að býsnast yfir því hvað væri miklu meira inn í Óskars páskaeggi sem var númer 4 heldur en mínu sem var númer 3 og var ekkert alveg sátt þegar ég opnaði málsháttinn og hvað stendur annað en: Mikið vill meira. Já var það ekki.. og í fyrra var ég að drekka mjólk og tyggja þá seigustu karamellu sem ég hef á minni æfi látið uppí mig þegar ég opnaði málsháttinn og hvað stendur?! Jú einhver málsháttur sem er örugglega ekki einu sinni til! Sjaldan verður mjólk sopinn og tugginn biti. Hefur einhver heyrt þetta áður? Annars áður en ég hætti verð ég að tjá mig um frétt sem ég heyrði um daginn. Kvöldfréttir sjónvarpsins sögðu frá því af mikilli alúð að hann Ari fyrrum Kópavogsbúi hafi tekið land undir fót og flutt búferlum til Hveragerðis. Svo var rætt við hann og fjölskylduna um það hvernig gengi að aðlagast og þvíumlíkt þarna í Whodid. Einnig var komið inná það að Ari ynni ennþá í borginni og keyrði hvern morgunn um 40 mínútur til vinnu sinnar. Hvernig það legðist í hann í morgunsárið og þar fram eftir götunum. Ari er ekki frægur maður, má vera að hann sé merkilegur en fáir viti af því, en það var ekkert komið inná það í þessari frétt. Því spyr ég mig er þetta góð frétt? Að Ari starfsmaður hjá skattstofu ríkisins hafi flutt sig um set frá Kópavogi til Hveragerðis? ja dæmi nú hver fyrir sig..


<< Home