Heja Norge! ..eða eitthvað bara. Hejsa Danmark hljómar betur :D Já í dag fékk ég sent bréf í hvítu og gulu umslagi merkt Nordjobb og kætinn surlaði inní mér. En hún var ekki lengi þar því hún braust út með skrækjum og tryllingslegum dansi. Draumur minn er að rætast, ég fékk vinnu á elliheimili í Kaupmannahöfn! Elliheimilið er staðsett í Köbenhavn S, eða út á Amager =) þannig að nú er ég bara brjálað spennt yfir því hvar ég á eftir að búa. Svo má ekki gleyma því að ég get nú líklegast vitnað í TV í höfði með sönnu og sagt að ég hafi verið að skeina gömlum manni. Þessi dagur einkennist semsagt annars vegar af kæti og gleði sem fyllir brjóst mitt og ekki má gleyma tilhlökkun og þrá í danska sól og fleira danskt.. og jú hins vegar jafnvel í einu orði en mér er alveg sama núna.. bílastaða pirringi dauðans, engu að síður hef ég staðið mig með stakri príði í þeim efnum og bakkað glæsilega út úr þröngasta og ljótasta bílastæði í heimi.. og ég er kona! hahh.. nú ætla ég að hætta félagsskítaskapnum og fara niður og spjalla við beg og elf og hel som jeg elsker :D


<< Home