sunnudagur, apríl 04, 2004

Í gærkvöldi fór ég í leikhús. Ég lagði leið mína í Ketilhúsið, þar sem leikklúbburinn Saga var að sýna frumsamið verk sem þau nefndu Hamslaus. Ég get ekki að því gert, en ég er bara yfir mig grobbin af því að þekkja þetta fólk, þvílíkt flott hjá þeim. Ótrúlega vel útfærð sum atriðin og túlkunin frábær.. Eyrún fór á kostum sem skólameistari og prestur.. brá sér í margra kvikinda líki kellingin! Vala og Lilja voru líka frábærar og augljóslega upprennandi leikkonur, fyrir utan alla hina sem stóðu sig líka eins og súperhetjur. Í heildina séð var leikritið fagmannlegt og flott. Hver veit nema ég skelli mér á það aftur þegar þau sýna það í Danmörku! :) ..fleira fólk sem er að standa sig eru auðvitað fulltrúar Akureyringa á
Söngkeppni FF, báðir skólarnir fengu verðlaun og það var bara alveg frábært. Ævar, Andri og Haukur fóru á kostum eins og oft áður og voru æsandi hvæsandi í þessu atriði sínu. Keppnin var góð fannst mér en ekki eins góð og í fyrra. Jább fullt af hnökkum í bænum í kvöld og Love gúrú í sjallanum, ég geri þau mistök aldrei aftur að villast á svoleiðis sora samkomu, nei takk!