Jæja.. ætli það sé ekki orðið passlega langt síðan ég skrifaði síðast svo ég geti farið að gusa úr mér aftur! jáhh.. hvar á ég að byrja? Skólinn byrjaður aftur á fullu og allt kreisí eins og vanalega. Framboðsvikan er liðin og úrslitin liggja fyrir, ennþá öllum ókunn reyndar og fólk farið að titra af spenningi og stressi. Allir nema ég ;) Ég er búin að njóta þess að geta verið góð með mig þessa daga þar sem ég er komin áreynslulaust inn í stjórnina. Fyrst var ég soldið svekkt að fá ekki að taka þátt í baráttunni miklu en svo áttaði ég mig á því að það er bara mun betra að lifa í vissunni heldur en óvissunni og mat það mikils að engin/n hafi nennt að fara í ritarann. En nóg um það þetta kemur allt í ljós á morgun, þ.e.a.s. hverjir verða með mér í þessari stjórn. En já þessi vika er semsagt búin að fara í þetta kosningarugl, skólinn þakinn nammibréfum og auglýsingum. Á föstudagskvöldið var svo partí uppí Skeifu, þar var rífandi fjör og góð stemming bara, Lísa gangavörður kom angandi af hestaóþef og knúsaði okkur allar sem vorum í Barnaskólanum hjá henni. Blessunin hún Lísa.. spurði hvort ég væri orðin aðeins villtari en ég var?! :O ..hvað var það nú! hehe mjög skemmtilegt að fá smá innlit frá henni, hún fræddi okkur líka um það að gamall bekkjarfélagi okkar hefði verið að reyna við sig á oddvitanum eða í vélsmiðjunni eða einhverjum fjandanum haha það fannst okkur fremur fyndið að hann væri bara hjólandi í gömlu gangaverðina! Þetta kvöld endaði svo eftir smá kíkk í bæinn á mjólk og molum sem var alveg frábært :D ..aldrei slæmt að enda svona kvöld á líter af mjólk! Laugardagurinn fór bara í einhverja vitleysu og í dag svaf ég miklu lengur en ég ætlaði. Keyrði svo útá Svalbarðseyri og seldi hrúgu af skeinipappír og eldhúsrúllum sem er mjög gleðilegt og gefur peninga. Svo er 'eg oh! 'eg gerði einhvern skrattakollinn við lyklaborðið :s jæja það verður að hafa það: j'a 'eg get ekki gert punkt semsagt og ekki eðlilega kommu heldur::: hmmm en hvað um það; 'eg hitti Birki og við f'orum 'a kaffih'us; voða k'os'y bara og 'eg drakk þrj'a bolla af kaffi og meira þarf 'eg ekki til að verða alveg hæper sem 'eg og er n'una ::skemmtileg tilbreyting 'a lyklaborðinu? æj'egveitþaðekki! en n'una er þessi dagur að verða b'uinn og 'eg 'a eftir að gera verkefni fyrir 'islensku og læra fyrir ensku l'ika alveg er þetta æðislegt! ::en þar sem 'eg 'a pottþ'ett efit að vilja fara eitthvað 'ut 'i kvöld að hitta f'olk þ'a er best að 'eg n'yti m'er þetta ofviknis 'astand 'i eitthvað g'afulegra en að skrifa einhverja vitleysu h'erna inn:: sem skilst ekki einu sinni!


<< Home