fimmtudagur, apríl 29, 2004

Ég er búin að viðurkenna það fyrir sjálfri mér og hér með öðrum líka að ég hef engan tíma fyrir útilegu um helgina því miður.. það verður að bíða betri tíma bara. Ég var hinsvegar að koma af visa-kynningarfundi, reyndar er nú lítið annað en 8000 kr. ferðaávísun sem situr eftir í mér.. en ætli það sé ekki nóg samt =) Sumarið ríkir og ég er búin að vera berfætt síðan á þriðjudaginn eða jafnvel fyrr, það er eitthvað við það að vera berfætt.. svo kósý eitthvað. Við sátum inní kompu í gær og skönnuðum skræpóttar síður hjá 15 ára gelgjum sem eru allar geggjað flippaðar alltaf að flippa og allir vinir þeirra eru geggjað flippaðir og æðislegir bara (K) ýkt hressandi að átta sig á því að maður er nánast komin uppúr gelgju árunum :D annar broskall fyrir því hvað skeinipappírinn flýgur hratt út úr gímaldinu :D ýkt hress og flippaður broskall!

love you all!!! (K)(K)(K)