þriðjudagur, apríl 27, 2004

Sumarið er komið.. held ég, það er allavega sumar í dag :D Sem gleður mitt hjarta, gott að vera væmin á vorin, horfa á blómin og brosa. Svona líður mér.. líður eins og það eigi að vera grillmatur á hverju kvöldi og allir séu að fara út í leiki. Mig langar í útilegu.. auglýsi hér eftir útileguáhugasömu fólki :) Annars er stjórnarstússið að byrja, munnlegpróf í vændum og gorgeir í bændum. Ég er samt voðalega róleg eitthvað eins og við er að búast.