Þá er munnlega enskuprófið búið og ég held ég hafi staðið mig ágætlega.. annað en á skriflega prófinu! Kein snaps für Tamara verður tekin í bakaríið um helgina og ég mun mætta eins og massaðasta mörgæs alheims í munnlegt þýskupróf á þriðjudaginn, damn ég hlakka til! Helgin verður eitthvað látlaus.. ætli ég reyni ekki að fara í gegnum eitthvað af þessum skýrslum og svona.. læra og vera með liðveislu. Ég fór einmitt með Kartrínu í sund í gær og þar hitti ég gamla konu sem var alveg villt í það að spjalla við mig. Allt í lagi gaman að spjalla við fólk en ef það hefur ekkert að segja og er eitthvað að rembast við að spjalla við mann um ekkert það verður það bara pirrandi, og þar með hefur spjallið ekkert skemmtilegt í för með sér. Maður fattar bara að maður á það á hættu að verða pirrandi spjall kelling sem reynir virkilega að leysa þá ráðgátu hvers vegna það sé lítil trafík í sundi akkúrat þá stundina, jú milli þess sem hún skrapar af sér hælana með einhverri sikk siggsköfu ..og það furðulegasta var að konan átti ekkert erfitt með að finna ástæður fyrir lítilli sundsókn þetta fimmtudagskvöldið. Það segir mér bara að hún kunni stundatöflu sundlaugarinnar utan af og það þótti mér dapurlegt. Til gamans má líka geta að ég komst að raun um að þessi sama kona þjáist af gigt og er veik í mjöðmum og syndir því mest megnis baksund... ég eiginlega trúi því ekki að ég hefi ekkert merkilegra að blogga um!


<< Home