mánudagur, maí 03, 2004

Af hverju lærði ég aldrei ballett? Ég held ég þurfi þess reyndar ekkert ég skynja mikla hæfileika hjá mér á þessu sviði. En mér finnst einhvernveginn eins og fólk sé ekki að skynja það sama og ég þegar ég leyfi upplifun minni að brjótast út með liprum hreyfingum við magnþrungin lög. Ég vil að fólk fari að taka mig alvarlega þegar ég dansa. Þetta er mér mikið hjartans mál og vona að það verði virt. Neih hvern er ég að plata ég dansa eins og kálfur að vori til!