Sæt nótt.. sumarið er alveg að koma, vorrigningarúði kitlar mann í framan þegar maður er úti að labba og það er soldið notalegt. Maður hnerrar og finnur vorlyktina og veit að það eru bara 3 vikur þangað til að ég verð í Danmörku. Mér líður eins og það sé nýbúið að slá grasið í garðinum hjá mér en samt er ekki búið að því. Við héldum Dimissio í gær og mér finnst það hafa lukkast vel, sólin kíkkti aðeins við um daginn og það var nóg af kökum og meira en nóg að drekka um kvöldið. Sem er gott því það var aðal áhyggjuefnið hjá okkur. Skemmtiatriðin voru skemmtileg þannig að þau hljóta að teljast fullkomin ekki satt? :) En nú er þessi kompusvitasamlokuógeðismysufrábærfélagsskapstörn búin og við tekur próftíð þó ekki með snjóhríð því mér líst ágætlega á töfluna okkar. Þetta verður engu að síður strembið.. en hey þetta verður líka búið eftir tvær vikur.


<< Home